Athyglisbrestur - ofvirkni
ADD - ADHD
Davis® hugtakameistrun
,,Meðferð án lyfja”
Námskeiðið er fyrir 8 ára og eldri. Skilyrði er að viðkomandi hafa einlægan áhuga og vilja til þess að leysa vandmál sín varðandi einbeitingu/athygli, ofvirkni, hegðunarvandamál og félagsleg samskipti. Einstaklingur sem tekur lyf til þess að hafa betri stjórn á hegðun sinni eða athygli er ráðlagt að hafa samband við lækninn sem ávísar lyfinu áður en lyfjatöku er hætt, ef hann hyggst nýta sér Davis® aðferðina.
Námskeiðið er sniðið að þörfum hvers einstaklings og að lokinni Davis® greiningu er lengd þess og innihald skipulagt nánar. Námskeiðið tekur styttri tíma ef viðkomandi hefur áður farið í Davis® lesblinduleiðréttingu.
Davis ráðgjafi vinnur með einstaklingnum og þjálfar hann í að nota aðferðir til þess að leiðrétta vandamál varðandi ofvirkni, vanvirkni, erfiðleika með að halda athygli, erfiðleika með að halda sér að verki og óviðeigandi félagslega hegðun.
Mynd











