Davis® námstækni
Davis náms- og lestrartæknin byggir á kenningum og aðferðum Ronalds D. Davis sem skrifaði ,,Náðargáfan lesblinda” og er ætluð öllum 5 – 9 ára gömlum börnum.
Með námstækninni má fyrirbyggja sértæka námsörðugleika. Nemendur eru þjálfaðir í að halda athyglinni við það sem þeir eru að gera hverju sinni. Þeir læra slökun og orkustillingu. Þeim er kennt að lesa með skapandi aðferðum sem taka til allra þátta skynjunar. Þessar aðferðir má nota einar sér eða samhliða öðrum lestrarkennsluaðferðum og geta þær jafnframt nýst í öllum námsgreinum. Davis® námstæknin hefur góð áhrif á nemendur með ofvirkni og athyglisbrest og auðveldar kennurum að halda uppi aga í skólastofunni og eiga samskipti við nemendur á jákvæðan hátt. Með því að fá þjálfun í þessari námstækni eru börnin betur undirbúin undir ævilangan námsferil.
Markmið Davis námstækninnar er að gefa kennurum í leikskólum og fyrstu bekkjum grunnskólans áhrifaríkt og öflugt tæki til að gera byrjanda í lestri að þroskuðum lesanda á þremur til fjórum árum. Einnig læra nemendur námstækni sem gagnast þeim allt lífið.
Hvernig varð Davis námstæknin til?
Davis námstæknin var mótuð og þróuð í sex ára tilraunastarfi sem fram fór í nokkrum grunnskólum í San Franciskó. Rannsóknar- og þróunarstarfið var í umsjón Sharon Pfeiffer, en hún hefur yfir tuttugu ára reynslu af bekkjarkennslu, námsefnisgerð og kennsluráðgjöf.
Markmið tilraunaverkefnis var að aðlaga hina árangursríku Davis einstaklingsmeðferð að kennslustofunni og kanna hvort mætti nota hana í forvarnarskyni og minnka þörf fyrir sérkennslu.
Tilraunaverkefnið sýndi að Davis aðferðirnar minnkuðu ekki aðeins þörf fyrir sérkennslu, heldur nýttust þær öllum börnum og námsmönnum, óháð lestrarkunnáttu og námsstíl. Lestrarhestar öðluðust betri móðurmáls- og málfræðiskilning og þeir sem lakari höfðu verið fóru nú að lesa án fyrirhafnar.
Aðferðirnar hjálpuðu kennurum við að halda uppi aga og reyndust einnig mjög hjálplegar í fjölmörgum námsgreinum öðrum en lestri.
Í bekkjum sem tóku þátt í þróunarstarfinu fjölgaði afburðanemendum langt umfram landsmeðaltal, óháð félagslegum bakgrunni. Hlutfall afburðanemenda fór úr 5% upp í 10-40%, sem er allt að 700% aukning afburðanemenda.
Þessi árangur varð til þess að þróað var grunnnámskeið fyrir kennara ásamt sérstökum námsgögnum.
Grunnatriði Davis námstækninnar eru:
- Davis® athyglistækni sem auðveldar nemandanum að beina athygli sinni að sérhverju verkefni.
- Davis® táknameistrun sem hjálpar nemandanum að ná fullu valdi á (meistra) stafrófinu, greinamerkjum og myndlausum orðum með einfaldri og skemmtilegri aðferð sem kemur í stað skriflegra æfinga og endurtekninga. Unnið er með leir. Með meistruninni má koma í veg fyrir að stafir og myndlaus orð valdi ruglingi í lestri.
- Davis® lestraræknin eykur orðaforða og skilning. Í þessari tækni eru æfingar sem kallast stafalestur, rennilestur og mynd við greinamerki. Lestrartæknina er hægt að nota eina sér eða samhliða öðrum lestraræfingum.
Með þessar aðferðir í farteskinu, eru börnin vel undirbúin fyrir fyrstu fjögur skólaárin og sömuleiðis fyrir ævilangan námsferil.
Vilt þú…
- Ná til allra nemenda þinna óháð þörfum þeirra og námsstíl.
- Ná tökum á hegðunarvandamálum.
- Læra aðferð sem getur fyrirbyggt lestrarörðugleika.
- Auðvelda nemendum námið með því að virkja sköpunargáfu þeirra.
- Mæta þörfum allra nemenda í senn: Þeirra sem stríða við námsörðugleika, meðalnemenda og afburðanemenda.
- Gefa nemendum kost á námstækni sem þeir búa að ævilangt.
- Örva lestrarnámið og lestrarfærnina með því að virkja tilhneigingu barna til að ,,læra með því að gera”.
- Auðvelda nemendum að halda athygli og taka eftir.
- Efla sjálfstraust nemenda með bættum námsárangri.
- Gefa nemendunum aðferðir til bættrar sjálfsstjórnar.
Sveigjanlegt og auðvelt í framkvæmd
- Námsgögn eru endurnýtanleg ár eftir ár.
- Engin þörf fyrir ljósritun, pappír eða penna.
- Aðlagast stundatöflu mjög auðveldlega. Tími sem þetta krefst er misjafn milli nemenda og milli árganga.
- Getur nýst í ólíkum kennsluþáttum, hvíldartímum, myndlist, lestrarstundum og hópastarfi.
Umsagnir kennara um Davis námstæknina
- Börnin eru tilbúnari til að fara að læra.
- Þau eru rólegri.
- Auðveldara að ná athygli þeirra.
- Athygli þeirra er stillt á það sem þau eru að vinna með.
- Þau læra fyrr að bera ábyrgð á hegðun sinni og námi.
- Þau muna betur það sem þau gerðu.
- Þeim finnst þetta skemmtilegt.
- Ég skil hegðun nemenda minna betur.
- Ég er fljótari að sjá hvort þau muni lenda í erfiðleikum með lestur.
- Ég er rólegri - ég nota aðferðina sjálf.
- Ég nota röddina minna og öðruvísi.
- Ég verð ekki eins þreytt eftir daginn.
- Ég er betri fagmanneskja sem kennari.
- Börnin læra námstækni sem getur enst þeim allt lífið.
Umsagnir nemenda
- Það er gott að slaka á, þá líður mér vel.
- Það er gott að vera stilltur á 5, þá er gott að læra.
- Það er ró og friður í bekknum.
- Ég stilli orkuskífuna á 5 þegar ég les hjá mömmu.
- Ég notaði orkuskífuna og slakaði á í samræmdu prófunum.
- Það er gott að hafa ímyndaðar hendur á öxlunum, þá gengur mér betur að lesa.
- Það er frábært að læra stafrófið áfram og afturábak.
- Ég er fljótari að vinna verkefnin.
- Það er gaman að leira.
Mynd












