Söluvara
Breyting á fyrirkomulagi söluvara.
Lesblind.com hefur hætt sölu á leir, leirhnífum og dúskboltum. Ágúst Óskarsson í Mosfellsbæ hefur tekið að sér að panta inn og sjá um sölu á leir, leiráhöld og dúskboltum fyrir Lesblind.com og aðra sem þurfa þessa vöru. Pantanir sendist til oskarsson@oskarsson.is. Lesblind.com selur áfram bókina Náðargáfan lesblinda og myndbandið. Einnig eigum við stafarenninga og stafapjöld til þess nota við Davis leiðréttingar.
Davis námstćkninámskeiđ 13. - 15. júní 2007
Námskeið var haldið í Davis náms- og lestrartækni 13. - 15. júní 2007. Námskeiðið var haldið í Snælandsskóla í Kópavogi. Davis námstækninámskeiðin eru þriggja daga námskeið ásamt eftirfylgni/framhaldsnámskeiði í október og janúar (tveir hálfir dagar). Þetta var sjöunda námskeiðið sem haldið var hér á landi. Námskeiðið sóttu að þessu sinni 25 grunn- og leikskólakennarar víðs vegar af landinu.
Mynd










