Beint á leiðarkerfi vefsins

Davis námstækninámskeið 13. - 15. júní 2007

Námskeið var haldið í Davis náms- og lestrartækni 13. - 15. júní 2007. Námskeiðið var haldið í Snælandsskóla í Kópavogi. Davis námstækninámskeiðin eru þriggja daga námskeið ásamt eftirfylgni/framhaldsnámskeiði í október og janúar (tveir hálfir dagar). Þetta var sjöunda námskeiðið sem haldið var hér á landi. Námskeiðið sóttu að þessu sinni 25 grunn- og leikskólakennarar víðs vegar af landinu.

Davis námstæknin® byggir á kenningum Ronald D. Davis sem skrifaði ,,Náðargáfan lesblinda" og er ætluð 5 - 9 ára gömlum börnum, óháð námsstíl. Hún er hugsuð sem aðferð til að fyrirbyggja sértæka námsörðugleika. Nemendunum er kennd sérstök aðferð til þess að þjálfa sig í að halda athyglinni við það sem þeir eru að gera hverju sinni. Þeir læra slökun og að stilla sína eigin orkuskífu. Þeim er kennt að lesa með skapandi aðferðum sem taka til allra skynfærniþáttanna. Þessar aðferðir má nota einar sér eða samhliða öðrum lestrarkennsluaðferðum og geta þær jafnframt nýst í öllum námsgreinum.

 

Davis námstæknin® hefur góð áhrif á nemendur með ofvirkni og athyglisbrest og auðveldar kennurum að halda uppi aga í skólastofunni og eiga samskipti við nemendur á jákvæðan hátt. Með því að fá þjálfun í þessari námstækni eru börnin betur undirbúin undir ævilangan námsferil.

 

Íslenskir kennara sem nota Davisnámstæknina® segja að þeir skilji nemendur sína á annan hátt en áður, þeir séu fljótari að greina vísbendingar um lestrar-, náms- og hegðunarörðugleika og að þeir hafi í höndunum tæki eða aðferð sem hjálpar þeim að grípa fyrr inn í á árangursríkan hátt.



Slóðin þín:

Forsíða » Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Prenta þessa síðu Veftré Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta og lesblinda Minnka letur Stækka letur leit

Mynd

Lesblind.is