Beint á leiðarkerfi vefsins

Guðbjörg Emilsdóttir                                                                   Guðbjörg Emilsdóttir sérkennari, Dipl. Ed. í kennslufræði frá KHÍ, Davis ráðgjafi (Davis Facilitaor),  Davis námstækniráðgjafi (DLS School Mentor) 

Sæbólsbraut 6
200 Kópavogur

 

Hafðu samband í síma

s: 554 3452
gsm: 863 3136

hafðu samband tölvupóstur 

gudbjorg@lesblind.is  

  • Lestrargreining - lesblindu/dyslexiugreining og ráðgjöf 
  • Davis greining
  • Davis leiðréttingarnámskeið
  • Ráðgjöf fyrir kennara/skóla sem vinna með Davis námstækni

Guðbjörg er grunnskólakennari með framhaldsnám í sérkennslu-, uppeldis- og kennslufræði. Hún hefur sinnt ýmsum störfum innan grunnskólans, m.a. starfað sem bekkjarkennari, sérkennari, fagstjóri í sérkennslu og nokkur ár sem aðstoðarskólastjóri. Hún sat í stjórn Námsgagnastofnunar í 9 ár sem fulltrúi KÍ. Hún fékk Davis ráðgjafarréttindi og Davis námstækniráðgjafaréttindi 2004.
Í starfi sínu sem sérkennari hefur hún aðallega unnið með nemendum með dyslexiu og ADHD og ADD.
Hún hefur alla tíð verið virk í að leita leiða sem virka fyrir nemendur sína og hefur í þeirri leit m.a. tekið þátt í og leitt nokkur þróunarverkefni í lestri innan grunnskólans og sótt mörg námskeið þessu lútandi.

,,Fyrir nokkrum árum benti samkennari minn mér á bókina ,,The Gift of Dyslexia" eftir Ron Davis. Ég fann strax að þarna væri eitthvað sem ég yrði að læra meira um og prófa með nemendum mínum. Ég lagði af stað í mikla ævintýraferð. Ég byrjaði á að fara á fyrsta Davis námstækninámskeiðið sem haldið var hér sumarið 2003 og hélt síðan áfram og lauk námi sem Davis ráðgjafi haustið 2004. Einnig hef ég lokið þjálfun sem Davis námstækniráðgjafi og skipulagt Davis námstækninámskeið.
Davis aðferðirnar hafa haft mikil áhrif á mig. Loksins finnst mér ég skilja nemendur mína og loksins finnst mér ég vera búin að ná tökum á markvissum og skemmtilegum aðferðum sem virka fyrir flesta með dyslexiu. Þetta eru aðferðir sem byggja á styrkleika nemendanna og hjálpa þeim að byggja upp sjálfstraust og nýta þá frábæru hæfileika sem þeir hafa".

Til baka



Stjórnborð

Forsíða vefsins Prenta þessa síðu Veftré Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta og lesblinda Minnka letur Stækka letur leit

Mynd

Lesblind.is