
Sturla Kristjánsson sálfræðingur
Davis ráðgjafi (Davis Facilitator), Davis námstækniráðgjafi (DLS School Mentor) og Davis námstæknikennari (DLS School Presenter). www.les.is/
Ármúla 5
105 Reykjavík
s: 862-0872
s: 845-6956,
eða notaðu fyrirspurnar- eða pöntunarformið hér til hliðar á síðunni.
Sturla er menntaður grunnskóla- og framhaldsskólakennari og sálfræðingur með löggildingu á Íslandi og í Danmörku. Hann lauk kennaraprófi frá K.Í. 1965; Cand. Pæd.-Psyk prófi frá Danmarks Lærerhøjskole 1977 og stundaði nám í stjórnfræðum menntamála við U.B.C. í Vancouver 1989-1993.
Sturla hefur gjarnan fengist við brautryðjandastörf í skóla- og uppeldismálum. Hann starfaði sem kennari við Héraðsskólann að Núpi 1965-1969; var fyrsti skólastjóri Húnavallaskóla 1969-1971, en hélt þá utan til framhaldsnáms. Kemur til starfa á ný 1977 sem skólasálfræðingur fræðsluumdæmanna beggja á Norðurlandi og brautryðjandi sálfræðiþjónustu á landsbyggðinni.
Hann tekur við starfi fræðslustjóra N.-eystra 1978 og leiðir öfluga uppbyggingu skólaþjónustu í umdæminu á sviði rekstrar, sálfræði, sérkennslu og alm. kennslufræði.
Sturla var skólastjóri Þelamerkurskóla 1981-1983 í leyfi frá fræðslustjórastarfinu. Hann stundaði framhaldsskólakennslu og rannsóknarstörf frá 1987-1989 er hann hélt til náms við U.B.C.
Frá 1993 hefur Sturla mest stundað sálfræðistörf, lengst af á Akureyri og í Danmörku. Einnig hefur hann rekið eigin sálfræðiþjónustu.
Sturla hefur stundað öflugt sjálfnám s.l. 10-15 ár og einbeitt sér að málefnum bráðgerra barna, barna með athyglisbrest/athyglisbrest og ofvirkni, (ADD/ADHD), og lesblindra. Hefur hann sótt í smiðju þeirra, sem telja að sértæk vandamál í skóla stafi helst af einhæfum aðferðum sem ekki taki nægjanlegt tillit til mismunandi námsstíls nemenda.
Sturla hefur setið í fjölda nefnda og starfshópa á vegum ríkis og/eða sveitarfélaga og fagfélaga varðandi skóla- og uppeldismál, skrifað greinar, skýrslur og greinargerðir, kennt á námskeiðum og flutt erindi um faglega og rekstrarlega þætti skóla- og uppeldismála.
Sturla fékk Davis ráðgjafaréttindi í júní 2004. Hann tekur að sér verkefni á íslensku, dönsku og ensku hvar á landi sem er og einnig erlendis.
Mynd












