Valgerður Snæland Jónsdóttir, M.Phil.
B.A. í sérkennslufræðum, grunnskóla- og framhaldsskólakennari Davis ráðgjafi (Davis Facilitator), Davis námstæknirágjafi (DLS School Mentor) og Davis námstæknikennari (DLS School Presenter).
Grundarsmári 5 201 Kópavogur www.lexia.is
eða notaðu fyrirspurnar- eða pöntunarformið hér til hliðar á síðunni.
Valgerður Snæland Jónsdóttir hlaut Davis ráðgjafaréttindi á Íslandi í júní 2004 og Davis námstæknikennararéttindi í júní 2006. Davis námstækniráðgjafi 2006 og Davis námstækni school presenter 2006.
Hún hefur búið í Kópavogi frá 1963 og á langan og farsælan starfsferil í menntakerfinu. Valgerður er menntaður kennari og sérkennari. Hún lauk B.A. námi í sérkennslufræðum frá Kennaraháskóla Íslands og M.Phil. námi frá University of Northumbria á Englandi með áherslu á skólanámskrárgerð, skólaþróunarfræði, menntunar- og skólastjórnun. Valgerður starfaði lengst af sem sérkennslufulltrúi á Fræðsluskrifstofu Reykjanesumdæmis. Hún hefur starfað sem kennari við Digranesskóla og Upptökuheimili ríkisins; sem sérkennari við Kársnesskóla, Þinghólsskóla og Sérkennslustöð Kópavogs; og sem lektor við Kennaraháskóla Íslands við uppbyggingu náms í sérkennslufræðum þar sem hún skrifaði m.a. námskrá starfsleiknináms fyrir kennara í almennum grunnskólum ásamt Keith Humphreys. Valgerður hefur starfað sem skólastjóri við Smáraskóla í Kópavogi frá stofnun hans 1994.
Valgerður var skipuð varamaður í stjórn Blindrabókasafnsins frá stofnun þess 1982 til 1988; hún átti sæti í starfshópi á vegum European Association of Special Education um tölvur í sérkennslu og sat í starfshópi á vegum Námsgagnastofnunar um útgáfu sérkennslugagna (1983-1990).
Valgerður hefur leitt ýmis þróunarverkefni s.s. um skólanámskrárgerð, um heildaraðferð í lestri og um nýjar áherslur í stærðfræðinámi.
Hún var m.a. ráðgjafi vegna stofnunar sérdeildar fyrir einhverf börn í Digranesskóla, vegna stofnunar sérdeildar við Myllubakkaskóla og um uppbyggingu á sérkennslu við Fjölbrautaskólann í Garðabæ.
Valgerður hefur komið að námsefnisgerð fyrir börn og unglinga, þýtt léttlestrarbækur, gefið út móðurmálsverkefni og unnið að því að námsefni fyrir ökupróf var lesið á hljóðsnældur.
Valgerður hefur sótt námskeið í Davis námstækni hjá Sharon Pheiffer, Richard Whitehead og Siegerdine Mandema og hefur mikinn áhuga á að innleiða þá námstækni í íslenskt skólastarf. Það starf er nú komið á góðan skrið.
Mynd













