Davis greining
Davis greining er um 2-3 klukkustunda viðtalsgreining. Þetta er EKKI lestrar- eða lesblindugreining, heldur erum við einfaldlega að kanna hvort líklegt sé á þú getir og munir nýta þér Davis kerfið. Við skoðum hvort þú hafir gott vald á myndrænni hugsun, því að Davis kerfið nýtist best þeim sem búa yfir þeim eiginleika.
Í viðtalinu ert þú beðin/n um að meta stykleika þína og veikleika á ýmsum sviðum sem tengjast námi. Þarfir þínar eru metnar og markmið með leiðréttingunni sett. Síðast en ekki síst könnum við hvort þú hafir nægan áhuga á að nýta sér kerfið eftir að leiðréttingu lýkur. Þetta er grundvallaratriði. Ef leiðréttingunni er ekki fylgt eftir að henni lokinni næst ekki sá árangur sem að var stefnt og heimavinnan fullkomnar.
Ef niðurstaða greiningarinnar bendir til þess að leiðrétting muni nýtast er hægt að bóka leiðréttingu. Leiðréttingin er sniðin að þörfum hvers einstaklings á grundvelli greiningarviðtalsins. Sum stéttarfélög niðurgreiða leiðréttingar bæði fyrir félagsmenn og börn þeirra.
Mynd










