Beint á leiðarkerfi vefsins

Davis® leiðrétting

uppercase

Davis leiðréttingin fer þannig fram að Davis ráðgjafi vinnur með einstaklingi í 30 klukkustundir, oftast 5 daga í röð. Þá hefur viðkomandi tileinkað sér þau tæki sem hann þarf til að leiðrétta lesblinduna og finnur strax greinilega breytingu. Ef þörf er á frekari vinnu t.d. stærðfræðileiðréttingu, þarf að greiða fyrir það sérstaklega. Að 5 daga leiðréttingunni lokinni, þarf að vinna um 1-2 klukkustunda heimavinnu á viku í 1 -2 ár, til að tryggja þann árangur sem náðst hefur og leiðrétta lesblinduna til fulls.

Skynstilling                                                                                            Skynstilling er grunnurinn að hugmyndafræði Ron Davis.  Skynstilling er til þess gerð að viðkomandi nái valdi á að halda fullri athygli. Þetta næst með samblandi af einföldum hugar- og líkamsæfingum. Þegar skynstillingu er náð verður strax mun auðveldara að halda athygli við lestur og þá er hægt að finna endurtekin mistök í lestri og leiðrétta þau.

Slepping                                                                                                         Kennd er einföld aðferð til þess að losa um spennu í líkamanum.

Orkuskífan                                                                                                     Kennd er einföld aðferð til þess að hafa stjórn á sinni eigin orku við nám og félagslegar aðstæður.

Að meistra stafi og önnur tákn                                                                 Nýyrðið "meistrun" er íslenskun á enska orðinu mastery. Með meistrun verður námsefni hluti af hæfileikum okkar á svipaðan hátt og það að hjóla verður hluti af okkur eftir að við höfum náð fullum tökum á því. Við notum plastleir við meistrunina vegna þess að hann virkjar sköpunargáfuna og alla okkar skynfærni. Við leirum stafi, svo kölluð kveikjuorð (flest myndlaus), önnur orð og tákn sem hafa ruglað okkur í ríminu. Vandamálinu er rutt úr vegi með því að skilja nákvæmlega rétta merkingu þeirra og forma í leir þrívíða mynd af þeirri merkingu. Áður en hægt er að meistra orð, byrjum við á að meistra stafrófið og greinamerkin.

“Athyglisþjálfun leiðréttir skynjun; táknameistrun leiðréttir lesblindu.” -Ron Davis

Að meistra orð                                                                                                 Við tileinkum okkur orð með því að tengja saman þá þrjá hluta sem búa í öllum orðum, merkingu, útlit og hljóð. Við flettum upp á skýringu viðkomandi orðs og mótum í leir bæði merkingu orðsins og útlit.

Við hjálpum viðkomandi að tileinka sér ,,ruglorðin/kveikjuorðin”, en flestir lesblindir eiga erfitt með að átta sig á merkingu þeirra vegna þess að yfirleitt eru þau myndlaus. Öll þessi ,,ruglorð” þarf viðkomandi að meistra með leirmótun að námskeiðinu loknu. Þessi eftirvinna tekur flesta um áttatíu klukkustundir og dreifist yfir 1 – 2 ár.

Sérhvert orð eða hugtak sem veldur ruglingi er hægt að meistra með leirmótuninni. Með því að móta útlit orðsins í leir ásamt merkingunni, nær viðkomandi einnig fullu valdi á stafsetningunni.

Að meistra námsefni                                                                                   Þessari meistrunaraðferð - að tileinka sér hluti með leirmótun - er hægt að beita á hvaða námsefni sem er. Þegar viðkomandi hefur náð fullum tökum á meistruninni beitir hann henni við allt nám, einfaldlega vegna þess að þessi aðferð er sú fljótvirkasta og áhrifamesta sem honum stendur til boða.  

Lestraræfingar                                                                                                 Við gerum þrenns konar lestraræfingar sem kallast:

  • Stafalestur
  • Rennilestur
  • Mynd við greinamerki

Dúskboltaæfingar                                                                                        Nemendur gera æfingar með boltum sem þjálfa þá í að halda jafnvægi og athygli, þjálfa samhæfingu augna og handa, að fara yfir miðlínu líkamans og þjálfa tímaskynið.

Heimavinnan                                                                                                   Það er mikilvægt að skjólstæðingurinn stjórni sjálfur heimanáminu og taki fulla ábyrgð á því. Öll nauðsynleg gögn fylgja námskeiðinu. Sjálfstæði og öryggi vex eftir því sem áður duldir og bældir hæfileikar eru leystir úr læðingi. Gerður er samningur við viðkomandi um hvernig ætlunin er að fylgja námskeiðinu eftir.

Þjálfun stuðningsaðila                                                                                  Þjálfun stuðningsaðila er mikilvægur þáttur námskeiðsins. Stuðningsaðili getur verið einhver úr fjölskyldunni, stuðningskennari eða vinur. Við kennum honum grundvallaratriði meistrunarinnar og gefum leiðbeiningar um það hvernig best má veita hjálp við heimavinnuna.



Stjórnborð

Forsíða vefsins Prenta þessa síðu Veftré Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta og lesblinda Minnka letur Stækka letur leit

Mynd

Lesblind.is