Davis® lestrarnámskeið fyrir 5 - 8 ára
Davis lestrarnámskeiðið er einstaklingsmiðað lestrarkennslunámskeið fyrir börn á aldrinum 5 - 8 ára. Davis ráðgjafi vinnur með barninu 2 - 3 tíma á dag í tvær til þrjár vikur, samtals 25 - 30 klukkustundir. Foreldrar, annað eða bæði, eru með barninu í tímum og fylgjast með því hvernig barnið lærir og hvað það lærir. Þannig öðlast þeir færni sem þarf til veita barninu áframhaldandi stuðning og taka virkan þátt í lestrarnámi barnsins.
Markmiðið námskeiðsins er:
- Að veita börnum á aldrinum 5 - 8 ára þá bestu byrjun á námsferlinum sem mögulegt er.
- Að barnið læri áhrifaríka námstækni í samvinnu leiðbeinandans, barnsins og foreldranna, sem mun nýtast því við frekara nám alla ævi.
- Að veita öðru eða báðum foreldrum barnsins, eða stuðningsaðila þess, nægilegt öryggi og færni í Davis aðferðinni til þess að vinna með barninu meðan á námskeiðinu stendur og heima eftir að því lýkur.
- Að barnið læri að beita aðferðum og hugtökum sem þarf til þess að þróa góða lestrarfærni og lesskilning.
Innifalið í námskeiðinu eru sérstök námsgögn og handbók fyrir foreldra til þess að nota heima þegar námskeiðinu er lokið.
Hafðu samband við Davis ráðgjafa til þess að fá nánari upplýsingar um Davis lestrarnámskeið fyrir 5 - 8 ára.
Mynd










