Beint į leišarkerfi vefsins

Um reikniblindu og Davis® stærðfræðileiðréttingu

Með Davis aðferðinni er tekið á rót vandans sem veldur því að sumir lenda í erfiðleikum við að læra stærðfræði með hefðbundnum kennsluaðferðum. Orð og tákn sem lýsa aðgerðum í stærðfræði valda oft ruglingi í huga fólks sem er sjónrænt í hugsun og með mikla rýmisgreind (visual-spatial).

Þegar búið er að meistra öll grunnhugtökin sem þarf til þess að skilja  stærðfræði verður eftirleikurinn auðveldur.

Eins og í Davis lesblinduleiðréttingunni er fyrsta skrefið í Davis stærðfræðileiðréttingunni að kenna einstaklingnum að ná stjórn á skynvillu. Þegar nemendurnir eru vissir um að skynjun þeirra er stöðug geta þeir leyst allan rugling varðandi stærðfræðina með aðferðum sem byggja á þeirra eigin sköpunargáfu og hugvitsemi.

Þættir sem unnið er með:

  • Grunnhugtökin sem þarf að skilja til þess að skilja og læra stærðfræði: Breyting, á undan, á eftir, orsök, afleiðing, orsakasamband,  tími, röð og röð og regla
  • Tölur, tölustafi, fjölda, telja
  • Sætisgildi
  • Reikingsaðgerðir
  • Almenn brot og tugabrot
  • Orð sem valda erfiðleikum í orðadæmum
  • Margföldunartaflan
  • Tími – klukkan, tímaskyn
  • Nota dagatal
  • Peningar, gefa tilbaka
  • Röð og rökfærslu
  • Lesskilningsæfingar til þess að skilja orðadæmi
  • Annað eftir þörfum einstaklingsins

Á námskeiðinu er lögð mikil áhersla á að byggja upp sjálfstraust eintaklingsins og öryggi gagnvart stærðfræði.

Til baka > Reikniblinda



Slóšin žķn:

Reikniblinda » Um reikniblindu

Stjórnborš

Forsķša vefsins Prenta žessa sķšu Veftré Senda žessa sķšu Hamur fyrir sjónskerta og lesblinda Minnka letur Stękka letur leit

Mynd

Lesblind.is