Beint á leiðarkerfi vefsins

Söluvara - pantanir

Ronald D. Davis er höfundur bókarinnar Náðargáfan lesblinda. Bókin lýsir Davis® aðferðunum, sem skilað hefur frábærum árangri við leiðréttingu lesblindu. Hún er ætluð foreldrum og öðrum sem vilja hjálpa börnum sínum eða sínum nánustu sem eru lesblindir. Bókin var þýdd á íslensku árið 2003 og var íslenska þá tólfta tungumálið sem bókin var þýdd á. Nú er búið að þýða hana á 19 tungumál.

Til er íslenskt myndband sem lýsir leiðréttingarferlinu. Það er framleitt af Hvíta Fjallinu og gefið út af Lesblind.com og Alice og Ronald D. Davis. Þar útskýrir Axel Guðmundsson hugmyndirnar að baki Davis® kerfinu og sýnir hvernig leiðréttingin fer fram. Myndbandið er um hálf klukkustund.

Bókin og myndbandið eru til sölu á vef Lesblind.is. Einnig er hægt að nálgast þessar vörur í flestum bókaverslunum um land allt.

Á Óskarsson í Mosfellsbæ, www.oskarsson.is  hefur tekið að sér að sjá um sölu á námsgögnum sem þarf að nota við leiðréttinguna. Það er mjúkur plastleir, leirhnífar og dúskboltar. Pantanir sendist til oskarsson@oskarsson.is

Lesblind.is er með stafaspjöld og stafrófsrenninga til sölu.

          bok og myndband web

Sýnishorn úr bókinni

Slóðin þín:

Söluvara - pantanir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Prenta þessa síðu Veftré Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta og lesblinda Minnka letur Stækka letur leit

Mynd

Lesblind.is