Davis-greining fyrir mig/barnið mitt
Þetta er tveggja til þriggja klukkustunda viðtalsgreining þar sem við greinum þarfir þínar og markmið. Við skoðum heildarmyndina til að gera okkur grein fyrir bæði sterkum og veikum hliðum. Þetta er EKKI lestrar- eða lesblindugreining, heldur metum við hvort Davis kerfið henti þér og hvort líklegt sé að þú munir nýta þér það. Við skoðum hvort þú hafir gott vald á myndrænni hugsun, því að Davis kerfið nýtist best þeim sem búa yfir þeim eiginleika. Við ákvörðum hvort til staðar sé gagnkvæm löngun og vilji á milli leiðbeinanda og viðskiptavinar til að vinna saman. Síðast en ekki síst könnum við hvort þú hafir næga áhugahvöt til að nýta þér kerfið eftir að leiðréttingu lýkur. Þetta er grundvallaratriði, vegna þess ef þú fylgir ekki leiðréttingunni eftir að henni lokinni eru líkur á að árangur sá sem náðist á námskeiðinu renni út í sandinn. Bendi niðurstaða greiningarinnar til þess að leiðrétting muni nýtast viðkomandi er hægt að bóka leiðréttingu.
Vinsamlega fylltu út eyðublaðið hér fyrir neðan.