Beint á leiðarkerfi vefsins

Davis-greining fyrir mig/barnið mitt

Þetta er tveggja til þriggja klukkustunda viðtalsgreining þar sem við greinum þarfir þínar og markmið.
Við skoðum heildarmyndina til að gera okkur grein fyrir bæði sterkum og veikum hliðum.

Þetta er EKKI lestrar- eða lesblindugreining, heldur metum við hvort  Davis kerfið henti þér og hvort líklegt sé að þú munir nýta þér það. Við skoðum hvort þú hafir gott vald á myndrænni hugsun, því Davis kerfið nýtist best þeim sem búa yfir þeim eiginleika.

Við ákvörðum hvort til staðar sé gagnkvæm löngun og vilji á milli leiðbeinanda og viðskiptavinar til að vinna saman.

Síðast en ekki síst könnum við hvort þú hafir næga áhugahvöt til að nýta þér kerfið eftir að leiðréttingu lýkur. Þetta er grundvallaratriði, vegna þess ef þú fylgir ekki leiðréttingunni eftir að henni lokinni eru líkur á að árangur sá sem náðist á námskeiðinu renni út í sandinn.

Bendi niðurstaða greiningarinnar bendir til þess að leiðrétting muni nýtast þér er hægt að bóka leiðréttingu.

Vinsamlega fylltu út eyðublaðið hér fyrir neðan. 

Ég vil fá Davis greiningu fyrir mig/barnið mitt. Greitt er sérstaklega fyrir greininguna.
Vinsamleg merktu við hvort þú hafir hugsað þér að fara í Davis leiðréttingu ef útkoma greiningarinnar mælir með því. Leiðréttingin kostar kr. 186.000,- og þótt þú merkir "já" hér þá ert þú ekki að skuldbinda þig í leiðréttingu.
Gefðu okkur upplýsingar um hvenær þú vildir helst vinna. Sömuleiðis er gott að fá almennar upplýsingar um þig/ykkur.


Stjórnborð

Forsíða vefsins Prenta þessa síðu Veftré Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta og lesblinda Minnka letur Stækka letur leit

Mynd

Lesblind.is