Um fyrirtækið
Lesblind.is býður upp á Davis® greiningu og Davis® lesblinduleiðréttingu.
Davis ráðgjafarnir sem starfa á vegum Lesblind.is búa allir yfir mikilli og fjölþættri reynslu. Auk þess að vera alþjóðlegir Davis ráðgjafar með gild starfsréttindi frá DDAI eru þeir vel menntaðir á sviði uppeldis- og kennslumála og á listasviði. Sumir þeirra þekkja einnig lesblindu af eigin raun.
Davis ráðgjafar hjá Lesblind.is bjóða upp á kynningar á Davis aðferðunum, ráðgjöf, greiningar, leiðréttingar og lestrarnámskeið út um allt land.
Hafðu beint samband við Davis ráðgjafa
-
í síma
-
með tölvupósti
-
í gegnum fyrirspurnar- og pöntunarkerfið á síðunni
ef þú vilt fá upplýsingar um Davis lesblinduleiðréttingu, panta greiningu, viðtal, leiðréttingu eða fræðslufund.
Davis ráðgjafarnir leggja áherslu á að svara fyrirspurnum eins fljótt og kostur er.
Lesblind.com ehf var stofnað 2003 af Axel Guðmundssyni og Hildi Einarsdóttur. Haustið 2003 hófst námskeið á vegum Lesblind.com fyrir fólk sem hafði áhuga á að mennta sig í Davis aðferðunum og sækja sér réttindi sem Davis ráðgjafar. Því námi luku 20 einstaklingar. Sumarið 2005 keypti hópur Davis ráðgjafa Lesblind.com og reksturinn. Sumarið 2006 var nafni fyrirtækisins breytt í Lesblind.is. Núverandi eigendur eru: Ásta Ólafsdóttir, Guðbjörg Emilsdóttir, Sigrún J. Baldursdóttir, Stefanía Halldórsdóttir Wade, Sturla Kristjánsson, Svava Hlín Hákonardóttir, Valgerður Snæland Jónsdóttir, Þorbjörg Sigurðardóttir, Þór Elís Pálsson.
Mynd










